Sagan okkar í þessum kafla er ein sú allra þekktasta saga Biblíunnar og fjallar um krossfestingu Jesú. Þessi frásögn er tekin úr Lúkasarguðspjalli. Með Jesú voru og færðir til lífláts aðrir tveir sem voru illvirkjar.Og er þeir komu til þess staðar sem heitir Hauskúpa krossfestu þeir hann þar og illvirkjana, annan til hægri handar, hinn til vinstri.Þá sagði Jesús: „Faðir, fyrirgef þeim því að þeir vita ekki hvað þeir gera.“ Eins hæddu hann hermennirnir, komu og báru honum edik og sögðu: „Ef þú ert konungur Gyðinga, þá bjargaðu sjálfum þér.“ Og nú var nær hádegi og myrkur varð um allt land til nóns því sólin missti birtu sinnar. En fortjald musterisins rifnaði sundur í miðju. Þá kallaði Jesús hárri röddu: „Faðir, í þínar hendur fel ég anda minn!“ Og er hann hafði þetta mælt gaf hann upp andann. HORFÐU Á FYRIRLESTURINN
SKILABOÐ TIL ÞÍN
HLUSTAÐU Á FYRIRLESTURINN
BIBLÍAN OKKAR
PÍSLARSAGAN
En þeir köstuðu hlutum um klæði hans og skiptu með sér.Fólkið stóð og horfði á og höfðingjarnir gerðu gys að honum og sögðu: „Öðrum bjargaði hann, bjargi hann nú sjálfum sér ef hann er Kristur Guðs, hinn útvaldi.“
Yfirskrift var yfir honum: ÞESSI ER KONUNGUR GYÐINGA.
Annar þeirra illvirkja sem krossfestir voru hæddi hann og sagði: „Ert þú ekki Kristur? Bjargaðu sjálfum þér og okkur!“
En hinn ávítaði hann og sagði: „Hræðist þú ekki einu sinni Guð og ert þó undir sama dómi? Við erum það með réttu og fáum makleg gjöld fyrir gerðir okkar en þessi hefur ekkert illt aðhafst.“Þá sagði hann: „Jesús, minnst þú mín þegar þú kemur í ríki þitt!“
Og Jesús sagði við hann: „Sannlega segi ég þér: Í dag skaltu vera með mér í Paradís.“ ÍGRUNDUN
BÆN KAFLANS
Vertu Guð faðir, faðir minn,
í frelsarans Jesú nafni,
hönd þín leiði mig út og inn,
svo allri synd ég hafni.
Amen.
(Hallgrímur Pétursson)