Sagan okkar að þessu sinni er úr Markúsarguðspjalli en hún fjallar um upprisu Jesú sem gerðist eftir að hann var krossfestur. Þá er hvíldardagurinn var liðinn keyptu þær María Magdalena, María móðir Jakobs og Salóme ilmsmyrsl til að fara og smyrja hann. Og mjög árla hinn fyrsta dag vikunnar, um sólarupprás, koma þær að gröfinni. Þær sögðu sín á milli: „Hver mun velta fyrir okkur steininum frá grafarmunnanum?“ En þegar þær líta upp sjá þær að steininum hafði verið velt frá en hann var mjög stór. Þær stíga inn í gröfina og sjá ungan mann sitja hægra megin, klæddan hvítri skikkju, og þær skelfdust. En hann sagði við þær: „Skelfist eigi. Þér leitið að Jesú frá Nasaret, hinum krossfesta. Hann er upp risinn, hann er ekki hér. Sjáið þarna staðinn þar sem þeir lögðu hann. En farið og segið lærisveinum hans og Pétri: Hann fer á undan yður til Galíleu. Þar munuð þér sjá hann eins og hann sagði yður.“ Þær fóru út og flýðu frá gröfinni því ótti og ofboð var yfir þær komið. Þær sögðu engum frá neinu því þær voru hræddar. HORFÐU Á FYRIRLESTURINN
SKILABOÐ TIL ÞÍN
HLUSTAÐU Á FYRIRLESTURINN
BIBLÍAN OKKAR
HANN ER UPPRISINN
ÍGRUNDUN
BÆN KAFLANS
Góði Guð, stundum er lífið svo erfitt og margt að takast á við. Viltu vera með mér þar og halda fast um hönd mína. Viltu gefa að ljós og von megi koma til mín og minna á slíkum stundum og að návist þín gefi okkur styrk og stuðning. Amen.