Fyrirgefning

HORFÐU Á FYRIRLESTURINN

SKILABOÐ TIL ÞÍN

HLUSTAÐU Á FYRIRLESTURINN

LESEFNI

Con Dios, bls. 66-73

Við hvetjum ykkur til að vera dugleg að lesa í bókinni fyrir hvern tíma.

Lesblindir og sjónskertir eiga rétt á að nálgast Con Dios á hljóðbók á Blindrabókasafninu.

BIBLÍAN OKKAR

Sú saga sem fylgir þessum kafla heitir Syndir fyrirgefnar og er úr Lúkasarguðspjalli. Í því er Jesús lýst sem frelsara heimsins sem boðar okkur að fyrirgefa og vera miskunnsöm því þannig sýnum við kærleika og góðvild.

SYNDIR FYRIRGEFNAR

Farísei nokkur bauð Jesú til máltíðar og hann fór inn í hús faríseans og settist til borðs. En kona ein í bænum, sem var bersyndug, varð þess vís að hann sat að borði í húsi faríseans. Kom hún þá með alabastursbuðk með smyrslum, nam staðar að baki Jesú til fóta hans grátandi, tók að væta fætur hans með tárum sínum, þerraði þá með höfuðhári sínu, kyssti þá og smurði með smyrslunum. Þegar faríseinn, sem hafði boðið honum, sá þetta sagði hann með sjálfum sér: „Væri þetta spámaður mundi hann vita hver og hvílík sú kona er sem snertir hann, að hún er bersyndug.“ 
Jesús sagði þá við hann: „Símon, ég hef nokkuð að segja þér.“
Hann svaraði: „Seg þú það, meistari.“ 

„Tveir menn voru skuldugir lánveitanda nokkrum. Annar skuldaði honum fimm hundruð denara en hinn fimmtíu. Nú gátu þeir ekkert borgað og þá gaf hann báðum upp skuldina. Hvor þeirra skyldi nú elska hann meira?“  Símon svaraði: „Sá hygg ég sem hann gaf meira upp.“
Jesús sagði við hann: „Þú ályktaðir rétt.“ Síðan sneri hann sér að konunni og sagði við Símon: „Sér þú konu þessa? Ég kom í hús þitt og þú gafst mér ekki vatn á fætur mína en hún vætti fætur mína tárum sínum og þerraði með hári sínu. Ekki gafst þú mér koss en hún hefur ekki látið af að kyssa fætur mína allt frá því ég kom. Ekki smurðir þú höfuð mitt olíu en hún hefur smurt fætur mína með smyrslum. Þess vegna segi ég þér: Hinar mörgu syndir hennar eru fyrirgefnar enda elskar hún mikið en sá elskar lítið sem lítið er fyrirgefið.“ Síðan sagði hann við hana: „Syndir þínar eru fyrirgefnar.“  Þá tóku þeir sem til borðs voru með honum að segja með sjálfum sér: „Hver er sá er fyrirgefur syndir?“
En Jesús sagði við konuna: „Trú þín hefur frelsað þig, far þú í friði.“

ÍGRUNDUN

  1. Hefur þú þurft að biðja fyrirgefningar?
  2. Hvað er sérstakt við það sem Jesús gerir í sögunni?
  3. Hvað gerir þú þegar einhver biður þig fyrirgefningar?

VERKEFNI

Að þessu sinni ætlum við að æfa okkur í hvernig við tölum við hvert annað. Við ætlum að fara í samskiptaæfingar og vera þrjú og þrjú í hóp til að byrja með. Tveir sitja á móti hvor öðrum og sá þriðji fylgist með samskiptunum sem eiga sér stað. Hægt og rólega bætum við inn í nýjum skilaboðum til ykkar og saman spáum við í því hvernig við komum fram við hvert annað.

BÆN KAFLANS

Elsku Jesú, ég reyni mitt besta en stundum verður mér á. Viltu gefa að mér verði fyrirgefið og ég mun gera mitt allra besta til að fyrirgefa náunga mínum. Amen.